Signý og Herdís Til Nice
18.12.2007 19:06:44 / verynice

HOME SWEET HOME

jæja þá er ég loksins komin heim ¨!! það hefur verið allveg voða gaman í frakklandi en ég ætla ekki að lýsa því hvað það er gott að vera komin heim ! Mamma, bjarni og Guðrún voru á flugvellinum til að taka á móti mér :D já það var frábært að vera komin loksins heim til íslands! ég var svo spennt í flugvelinni !

Ég vaknaði kl 7 á laugardagsmorgninum og lagði af stað út á flugvöll kl 8.. með ollie sem var svo indæll að koma með mér með allar töskurnar..
svo lenti ég í london um eitt leytið! og fór með lest inní london.. aðeins til að drepa tímann.. það var svo pakkað í london! ég átti erfitt með að hreyfa mig! og í 10 min á gatnamótunum oxford og regent street gat ég mig hvergi hreyft! "people jam" er kanksi hægt að lýsa þessu !
svo fór ég aftur á flugvöllinn til þess að bíða ! eftir fluginu mínu sem var kl 8 um morgunninn.. kl var held ég 8 um kvöld þegar ég kom aftur á flugvöllinn!
ég fékk mér að borða og kom mér svo vel fyrir! því jú ég þurfti að bíða vel og lengi !
en svo eftir að hafa reynt að sofna þá fljótt áttaði ég mig á því að það var ekki að fara að gerast! ég var of áhyggjufull að ég mundi seinrotast og einhver mundi taka töskuna mína.. eða ég mundi ekki vakna aftur fyrr enn það væri orðið of seint! en svo byrjaði maður að tala við mig sem sat hlið á mér og svo annar strákur sem sat hinum megin við mig og svo áður en ég vissi af vorum við orðin 5 eða 6 manns að tala saman þarna alla nóttina! ji hvað það var indælt að hafa eitthvað að gera og hafa einhvern til að tala við ! því annars hefði þetta gengið svo hægt! að ég hefði sennilega dáið úr leiðindum!
en svo þegar ég loks komst um borð .. þá var ég sofnuð áður en við fórum í loftið .. enda orðin MJÖG þreytt! ekki búin að sofa í heilann sólarhring!

já svo ef einhver hugsanlega er að reyna að hringja í mig! þá er það ekki hægt með neinu móti ! ég á ekki íslenskann síma og franski siminn minn er inneignarlaus og get því ekki notað hann!
ég er með msn.. facebook.. svo fólk getur skilið eftir skilaboð þar.. eða auðvitað bara hér..
og svo er mamma með gsm sem fólk getur hringt í .. en ég frekar kýs skilaboðin á netinu .. því mamma er auðvitað ekki minn persónulegi einkaritari !

en já ég ætla að reyna að halda áfram að koma herberginu mínu í lag.. þar sem ég áttað mig á því þegar ég kom heim að ég á svo mikið af drasli sem ég þarf ekkert á að halda .. og hef ekkert saknað meðan eg var úti .. svo ég er í þvílíku hendu stuði núna síðan ég kom heim!
og auðvitað líka að koma röð og reglu á hlutina!

 Andri er að koma heim a Föstudaginn :D víííjjj !! mig hlakkar til ! 

 en já ..
bæbæ !

Kv. Herdís  


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.11.2007 20:26:20 / verynice

þetta er með því fyndnasta !!

Video...
hræðilega fyndið...
ýmundið ykkur að lenda í þessu ! hahahahha

http://www.youtube.com/watch?v=USOVuLkPhU8&feature=related

 ég get hlegið endalaust á þessu !!!

Kv. Herdís


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 13:48:53 / verynice

Þetta Ömulega Frakkland og Frakkarnir sem koma með því

°1já það var strákur sem að pikkaði allt uppúr veskinu mínu og skildi það eftir tómt.. veskið var á stólnum mínum þar sem við sátum inná bar.. við vorum búin að sitja þar í marga tíma og ég var alltaf með auga á veskinu.. en svo kemur þessi strákur sem var búinn að vera svo pirrandi allt kvöldið og spyr hvort hann megi fá stól sem vinur okkar hafði setið á en var nú farinn.. við sögðum auðvitað bara já.. og strákiurinn sest allveg ofan í okkur svo við snúum okkur frá honum og þar með missti ég auga af töskunni minni .. en það liðu kanski 10 min frá því að ég hélt á töskunni þangað til að ég ég tók hana aftur upp til að fara á klósettið og þá var allt horfið ..

ég var með íslenska símann minn, ipodinn, seðlaveskið allt sem ætti að vera í því svo sem visakort, debet, ökuskrteini, sjúkratryggingakortið mitt, einhverjir peningar, svo var ég með snyrtivorur og ilmvatn.. og jú pústið mitt! sem ég er mjög ánægð að hafa ekki þurft á þvi´að halda síðan hann tók það ..
í gær var ég að reikna hvað þetta gæti kostað allt að á nýtt.. og þetta var allavega svona 60-70 þúsund auðveldlega.. sem ég var að missa..

Kv Herdís

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 14:47:37 / verynice

Fabio nýji kærastinn minn !

(**Þetta Blogg var skrifað kl 3:00 um nótt.. þann 17. nóvember, rauninni laugardagsmorgun...  en það var einhver villa á síðunni svo ég gat ekki sett það inn.. **)


ég ætla að segja ykkur sögu
við vorum í tíma á fimmtudaginn og við áttum að vera þetta verkefni þar sem við áttum að skrifa bréf til foreldra okkar um :
að við værum í fríji einhvernstaðar.. og að ég hefði hitt strák og orðið ástfangin og ég væri að fara að giftast honum..
ok.. til að byrja með .. þá get ég ekki ýmundað mér þetta gerast .. og í öðrulagi ef þetta mundi gerast get ég ekki séð mömmu mína fyrir mér mjög hamingjusama ef ég mundi ákveða að senda henni fréttirnar í gegnum bréf!  svoleiðis að ég átti mjög eftitt með að koma mér í þessi spor..

en það tókst og ég er að fara að giftast hinum franska Fabio:lol:



Á morgun er Signý að fara til Lyon á Dansfestival.. hún er aftur að fara frá mér.. ekki það ég ákvað að því hún er að fara á dansfestival að fara ekki með .. því jú .. hvað mundi ég gera á dansfestivali ??? ég bara eiginlega hef ekki hugmynd.. en hún mun örugglega skemmta sér mjög vel :D við bara vonum að hún komist þangað þvi það er lestarverkfall.. sem þýðir eiginlega bara það að það er mjög erfitt að komast á milli staða í lest.. en hún held ég séi búin að finna lest sem fer kl 7 í fyrramálið .. og við vonum bara það besta :$

Ég og  Ollie ætlum bara að gera eitthvað á morgun saman... við erum búin að ákveða að við ætlum að borða samloku saman :D úúú ég borðaði bestu samloku í heimi í dag.. og mig hlakkar svo til á morgun að búa hana til aftur :D það verður svo gaman :D

uppskrift af hinni frábærustu samloku!!

þú þarft :

2. Brauðsneiðar
1. Kjúklingabringu
4. sneiðar af beikoni
3. sveppi
mayonese
ostur

þú gerir :
þú steikir kjúllann og beikonið
þú skerir sveppina og steikir þá svo með smá soya, salt og pipar
þú ristar brauðið

þú tekur svo heitt ristað brauðið og setur mayoið á það .. skerð kjúllann í bita og raðar þeim á brauðið setur svo beikonið á .. heldur í ostinn rétt yfir pönnunni svo hann bráðni og setur það ofan á beikonið .. setur svo sveppina á..
síðan legguru hina brauðsneiðina ofan á og ...

þú ættir að vera kominn með mjög góða samloku...
auðvitað geta allir bætt sína samloku eftir þeirra smekk.. tildæmis.. sett papriku, gúrku eða eitthvað .. en mér finnst þetta lang best svona :D
ég vil líka benda á að það er örugglega hægt að nota hamborgarasósu eða einhverja aðra sósu.. en hérna í frakklandi vita menn ekki hvað það er .. svo ég nota mayo :D

 

vá ok.. ég er eiginlega næstum þvi farin inní eldhús að elda.. ég held bara að nágrannar mínir væru ekki sáttir með það að ég væri að elda kl 3 að nóttu til :P hahahha

 

kv. Herdis 

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 13:25:06 / verynice

Nice Rigning !

Hæ hó
ohh það var rigning í dag :(:cry:  ég varð öll blaut á leið í skólann í morgun.. :(

í dag er mánuður ! þangað til að ég legg af stað heim :D

 

Þetta er svo hræðilega fyndið myndband! ég lá hérna í hláturskrampa :lol::lol:

http://myspacetv.com/index.cfm?fuseaction=vids.individual&videoid=536391

 

 

njótið

kv. Herdís 


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 19:44:57 / verynice

Frakkar eru mjög ókurteisir við þá sem tala ekki frönskuna reiðbrennandi!

hæhæ

 

jæja núna er bara c.a mánuður eftir.. og ég verð að segja að ég er að verða frekar pirruð á Franska fólkinu! það eru margir svo hræðilega ókurteisir.. við fórum á djammið á laugardaginn og við lentum í þvílíkum fordómum gagnvart okkur því við erum ljóshærðar.. við vorum að reyna að komast inná franskann skemmtistað og fyrst var okkur sagt að það væri allt fullt.. en við biðum aðeins lengur og þá var sagt að við værum of ungar.. og við sögðumst vera 21 og hvaða aldur þau eiginlega vildu ?? og þau hleyptu alltaf fólki frammfyrir okkur í röðinni inná staðinn.. sem voru greinilega frakkar! og síðan þvi við vorum ekkert að gefast upp þá sögðu þau bara við okkur að við þyrftum að fara því þau bara vildu okkur ekki inná staðinn !!!! ég varð svo pirruð !
og svo erum við búin að vera í veseni með nágrannanna okkar! helvítis tussa ein sem að býr í húsinu sem við eldum í !! en við erum að verða búin að leysa það mál.. hún vildi ekki hafa okkur neinstaðar nálægt sér og vildi alls ekki að við elduðum í húsinu sem hún býr í ! en ég talaði við konuna sem leigir okkur herbergið og hún sagði að það væri í lagi fyrir okkur að elda í hinu húsinu svo við höldum því bara áfram!
en það er allveg ótrúlegt hvað þau voru ókurteis við mig:S ég hafði ekkert gert þeim! (þá konan í hinu húsinu og maðurinn hennar)

svoleiðis að maður er að fá smá efasemdir afhverju ég er hérna í þessu landi að læra tungumálið þeirra !
en auðvitað er líka margir frakkar hræðilega sweet.. en mér finnst hinir sem eru það ekki vera að eyðileggja mjög fyrir hinum !
síðan er líka vesen í skólanum.. við förum ekkert áfram í bókinni..
kennarinn okkar kennir svo illa.. við erum alltaf að lesa það sama.. læra það sama.. og hún kennir okkur svo illa málfræðina að ég er engu nær þegar við eigum að vera búin að læra þetta.. því hún stendur bara þarna og talar eitthvað á frönsku.. sem sagt útskýrir allt munnlega .. ég auðvitað get ekkert lært hlutina þannig.. það er vel gleymt og grafið um leið og sá dagur er búinn.. það þarf að skrifa svona hluti niður..

svoleiðis að eg er orðin frekar leið á því að mæta í skólann á morgnanna.. ég hreinlega sé ekki tilgang í því að mæta.. því jú ég mun pottþétt ekkert læra neitt nýtt í dag ef eg mæti :S:evil:

 

en.. jæja það er bara mánuður eftir og ég verð bara að reyna að gera eitthvað gott úr þessu !
það er enn mjöög gott veður úti á daginn! sól og blíða:D

og já.. síðan ætla ég að setja inn þessa mjög svo skrítnu mynd.. sem ég er á engann hátt að skilja með neinu móti :$:$:$

 

 

Þetta mun vera heima hjá henni systur minni :S ég veit ekki allveg hvað er í gangi .. en ef einhver getur komið með góða útskýringu á því afhverju hún er með 10 börn en ekki bara 1 ??
þá væri það vel þegið :D

úú.. þetta gæti verið góð skoðunnarkönnun :D híhí 8)

 

 

en ég ætla að láta þetta nægja í bili af kvartri :S  

Kveðja Herdís  

 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 12:01:23 / verynice

hæ hó hæ... ´æj ég veit ekkert hvað ég á að skrifa í titil..

hæhæ

það er nú eiginlega fáranlegt hvað ég hef ekkert verið að blogga..
en talvan mín  er búin að vera í sínum eigin heimi og vill ekkert með mig hafa! :( en.. svo virðist vera að mér hafi tekist að laga hana.. ég fékk nýtt hleðslutæki :D haha

það er lítið að frétta.. en allt bara nokkuð gott..
signý yfirgaf mig til Spánar til að heimsækja Margréti... en síðan hún fór er búið að vera rosa gott veður og ég hef skemmt mér nokkuð vel bara..  

Mér finnst stundum rosa gott að fá smá tíma bara fyrir mig:D  svona sérstaklega þegar maður deilir svona litlu herbergi með annarri manneskju :D

annars veit ég eiginlega bara ekkert hvað ég á að blogga um.. mig langaði bara að koma einhverju hérna inn.. svo fólk haldi ekki að við séum dánar..
mamma hringir stundum í mig bara til að spurja hvort það séi ekki allt í lagi .. og einu sinni sagði hún.. gefðu mér vísbendingu ef það er ekki allt í lagi og þú getur kanski ekki sagt það .. :D :D
eins  og mér hefði verið rænt eða eitthvað .. ástæðan fyrir þessu var að ég hafði ekki sign-að inn á myspacið mitt í allnokkra daga :D

haha Mömmur :D þær eru frábærar !!

Við erum komin með hefð á Mánudögum.. við förum á Pub sem heitir Ma Nolans og þar er quiz night..  fyrsta skiptið þá vorum við í 13 sæti :D og við vorum svo ánægð.. síðan í síðustu viku.. 2 skiptið vorum við í 6. sæti :D  Hamingja get eg sagt bara ..
en svo í gær ! við vorum í 4 sæti :S:haha: svo nálægt ... en ji hvað maður var orðin stressaður og æstur í að vita hvort við mundum vinna :D en við erum ákveðin að mæta í næstu viku og rúlla þessu upp !!

 

en.. jæja.. ætli maður þurfi ekki að koma sér aftur út í sólina.. fá sér að borða eða eitthvað..

eða bara liggja hérna uppí rúmi...kanski

ég vil biðjast afsökunar á lélegu bloggi ef þú ert enn að lesa :D haha

kv. Herdís and mí síkret frend.. 8| 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 19:10:51 / verynice

UNDIRFATARÚTA!!!! Qu´est-ce que ce??? WAS IST DAS???

Howdy doody....Ca va??;)

Já já ég veit hvað þið eruð að hugsa....bara Vó hvað er í gangi....Signý að blogga!!! hehe en já mig langaði bara að deila þessum skítsæmilega degi með ykkur en já þessi dagur er búinn að vera alveg heavy nice....í fyrsta lagi þá vaknaði ég eldhress í morgun og ákvað að skilja Herdísi litlu eftir í rúminu sínu því að hún er búin að vera veik greyið...með hálsbólgu og hita og henni er ekkert búið að líða neitt ofboðslega vel upp á síðkastið sem er allt annað en gott mál :( en ég held að henni sé nú að batna sem er nú bara hið besta mál:D. Hvað er það samt....að verða veikur í útlöndum....það virðast bara allir verða veikir í útlöndum og sérstaklega í svona hita sem manni finnst nú bara fáránlegt, Margrét veik úti í Barcelona, búin að fara á sýklalyf og allt, Ásta vinkona mín veik úti á Flórída, Herdís veik hérna.... ótrúlega kaldhæðnislegt eitthvað......veikur í útlöndum..... Hvað er það??? Was ist das????:S:S manni finnst það bara ekki eiga að vera hægt...eitthvað hálf kjánalegt eitthvað að fá brjálað kvef í svona hita..manni finnst það bara eiga að vera í kuldanum á Íslandi.....en c´est la vie!!;)

En nóg með það...... ég tók samt strætó í skólann þar sem að ég sá fram á að ég yrði eitthvað smá sein ef ég myndi labba enda er þetta 25 mínútna labb og maður er stundum pínu latur á morgnanna þó að það sé nú helvíti hressandi að labba þetta, en já ég kveið svolítið fyrir að fara í skólann því að ég var hrædd um að ég yrði kannski bara ein í tíma og ég var ekki búin að læra heima8| Skamm Signý skamm :P hehe en NEI viti menn....það voru 3 nýir einstaklingar í hópnum mínum....GLEÐI:D hehe og ég komst líka að því að ég kunni miklu meira en þau sem var enn meiri gleði....þýðir sem sagt að mér hafi nú farið eitthvað fram síðan ég kom hérna hehehe en já þetta var bara helvíti hress og skemmtilegur tími mér til mikillar undrunar og ég skildi allt...mér til enn meiri undrunar hahahah. Ég held samt að Michelle(sem er kennarinn minn) hafi saknað mín svoldið því að við fórum ekki í skólann á mánudag og þriðjudag sökum leti og pínu slappleika.....Ussss...ég sagði þetta ekki8| en já hún næstum því faðmaði mig þegar ég mætti í tímann í morgun....hún var svo glöð að sjá mig haha og svo var hún þvílíkt að hæla mér í allan dag sem var bara gaman, en já ég var alveg að fíla þetta nýja fólk, þau eru 2 frá Bretlandi og ein 15 ára stelpa frá Þýskalandi.....gaman að þessu;) En já þið eruð kannski að velta fyrir ykkur titlinum á þessu bloggi....já eða ekki hver veit en ég ætla nú samt að útskýra það aðeins fyrir ykkur..weather you like it or not :P

En ok það var þannig að ég og Agata, þrítugi enskukennarinn sem býr með okkur...sem er by the way alveg yndisleg, ég dýrka hana en já við ákváðum að fara í smá göngutúr í dag eftir skóla hjá henni...sem er um 4 leytið þar sem að hún er í tímum eftir hádegi líka. En já við sem sagt fórum í göngutúr með fram ströndinni, þar sem að má sjá alveg helling af stórfurðulegu fólki....nota bene einn kall sem að heldur að hann sé Michael Jackson.....og dansar alveg stórfurðulega...en er samt bara býsna góður ef maður kýs að kalla svona spassaköst dans en já anyways við ákváðum að labba næstum því alla strandlengjuna...ok ekki alla því að þá myndum við líklegast enda í Ítalíu hahah:P en við löbbuðum í áttina að Le cháteau sem er gamli kastalinn uppi á hæðinni...rosalega fallegt þar en já við vorum bara að labba þarna í sakleysi okkar að njóta góða veðursins þegar allt í einu birtist þetta svakalega flykki fyrir framan nefið á okkur sem reyndist svo vera risastór rúta merkt Lingerie a.k.a undirföt. Þá var þetta einhver kynningarrúta fyrir nýja línu hjá Passionata...sem ég vissi reyndar ekki að væri til fyrr en bara núna í dag....alltaf gaman að læra eitthvað nýtt! En já..við urðum náttúrulega örlítið forvitnar um hvað leyndist inni í þessu flykki svoleiðis að við kíktum að sjálfsögðu inn og komumst að því að þetta var actually rúta með undirfötum(þú veist maður veit aldrei..hefði getað verið eitthvað dubious) En já þetta var svakalega flott, ég hef bara aldrei séð neitt svona áður, undirföt út um allt og nammi út um allt sem maður mátti borða:haha: ömm allavega vona ég það þar sem að ég át slatta:P en já svo var okkur boðið að láta taka mynd af okkur.... var eiginlega bara svona sjálfvirkur kassi sem að prentaði svo myndina út strax...rosa flott eitthvað hjá þeim.....við slógum að sjálfsögðu til og tókum alveg heilar 3 myndir :P hehe svo var okkur boðið upp á efri hæðina þar sem að leyndust enn meiri veitingar og ókeypis drykkir(gos, kaffi, te og vatn) og já þar var okkur líka boðið upp á ókeypis nudd sem ég að sjálfsögðu hikaði ekki við að þiggja....enda alltaf manneskjan sem nuddar alla og fæ aldrei neitt almennilegt nudd til baka. En já það var mjög yndælt..mjög slakandi hehe og hey maður myndi halda að maður væri neyddur til þess að kaupa eitthvað í staðin fyrir allt þetta fría dót but NOOO maður mátti bara ekki kaupa neitt....það var ekki hægt :D ME LIKEY.....Við fórum því alsælar út úr þessari rútu...saddar og afslappaðar hahahah

 Við í rútunni....þetta er mynd af hinni myndinni þannig að hún er ekkert brjálæðislega skýr:P

 Við fórum líka í FNAC, sem er svona raftækjaverslun...svoldið kannski eins og BT og Skífan nema bara miklu stærra með miklu meira úrval og fleiri hluti. Þar ákvað ég að gerast svoldið heimsborgaraleg og keypti mér heil 3 stykki af geisladiskum með frönskum flytjendum. Ekki að ég sé að fíla franska tónlist eitthvað sérstaklega vel sko...neibb neibb það er nefninlega bara málið að það er svo gott að hlusta á tónlist og hafa textann fyrir framan sig....maður lærir á þessu...en já ég keypti diskinn hennar Cörlu Bruni(Carla Bruni) hún er franskt súpermódel og er voða fræg hérna, svo keypti ég diskinn með Patrick Bruel sem er bara yndi....var að hlusta á hann og svo disk með stelpu sem heitir Constance Amiot....allt rosa flottir diskar;) svo keypti ég mér líka Blood Diamond...á alveg eftir að sjá hana og ég nenni ekki að reyna að finna vídeo leigu hérna þar sem að flestar leigurnar hérna eru sjálfvirkar og maður þarf eitthvað kort og eitthvað vesen og já svo dubba frakkar líka allar myndirnar í bíó og eru þess vegna svona 2 árum á eftir öllum öðrum löndum.....ok kannski ekki alveg en þú veist Bourne Supermacy var að koma í bíó hérna bara fyrir stuttu og 28 weeks later líka.....það segir alveg slatta.....ekki sýnt lengur í bíó heima hehe.....fávitar8| En já ég er samt búin að finna eitt bíó sem sýnir myndir á ensku með frönskum texta Vúhú:D ætla að prófa það bráðlega en já annars er ég bara róleg í kvöld....ætla að reyna að læra eitthvað smá og henda myndum inná myspace....loksins:D og svo horfa á 4.seríu af grey´s og 3 seríu af Prison Brake....yeah yeah I have my ways :P MUhahahah:evil::klikk:;)

Úff.....ég ætla að segja þetta nóg í bili......ég ætla að reyna að vera duglegri að blogga.....Ég skal ég skal!!! Ég hef alveg helling að segja ykkur frá :P hehe

Langar að setja hérna inn eina mynd af okkur síðan í París

 

Bless í bili sæta fólk;).... A Bientot.....kv. Signý:D

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

07.10.2007 16:02:12 / verynice

Toga Partý

jæja þá er kominn sunnudagur.. og í dag er ekkert hægt að gera nema .. sofa... og eða fara á stöndina ef það er veður til ... í dag ákvað ég að sofa.. það hefur verið mér til mikillar gleði að sofa bara í dag :D

Helgin er búin að vera CRACY
!!!! :haha:8|8|8|:haha: Það er varla að ég geti lýst þessu í orðum...
Á föstudaginn var okkur boðið í Toga Partý hjá vinum okkar sem eru hérna líka nema bara í örðum tungumálaskóla.. og ég held að það kvöld hafi toppað hitt og þetta.. við gerðum hluti sem mér hafði aldrei dottið í hug að ég mundi gera... eins og ég sagði áðan þá er mjög erfitt að útskýra þetta kvöld.. því jú.. þú þurftir eiginlega bara að vera á staðnum .. og frá byrjuninni.. það var mikilvægt að mæta á réttum tíma.. því þeir sem mættu bara einhverstaðar inní miðjuna á þessu kvöldi urðu bara frekar hræddir... and i quote..
"I was kinda scared there for a little bit " Tipton...hahah hann mætti seint og var ekki í tóga.. svoleiðis að hann áttaði sig ekki á stemmingunni ...
en jæja svo ég byrji nú að tala um þetta kvöld..
við fórum heim til þeirra.. bara í okkar venjulegu fötum og svo þegar við mættum vorum við klæddar úr.. (eða ég gerði það nú sjálf) og við vorum vafðar í þetta tóga.. og svo var bara Partý !!
ég er með eina mynd hérna sem ég er reyndar ekki inná.. en hún skýrir margt til að byrja með ....

Þetta Munu vera vinir okkar út Azurlingua..

en svo var einn sem var búinn að plana einhvern dans sem við þurfum að dansa..
hérna er myndúr miðjum dansinu... við vitum eiginlega ekkert hvað við erum að gera.. :S

fyrst vorum við liggjandi á gólfinu.. og það var einn sem sagði bara ""hermið eftir mér...""!!!!
ég vissi það ekki þá en þetta kallast víst Ormadans..
við lágum á gólfinu og áttum að hreyfa okkur um eins og ormur.. ég get varla líst því hvað þetta var kjánalegt... mér leið eins og ég væri í flogakasti á gólfinu.. svo stóðum við upp og áttum að vera með hendur bak við bak.. og hoppa um eins og ormur.. :S
þetta var MJÖG SKRÍTIÐ !!!!!!

Jejj .. þarna er mynd af mér og signý :D haha

en jæja svo var ákveðið að fara út!
og allir í tóga.. og niður í bæ...
við vorum auðvitað frekar hress og það voru frekar mikil læti í okkur.. við vorum syngjandi og dansandi eftir götunum.. þetta minnir einna helst á þegar við vorum að dimmitera.. mema þetta var næstum því bara skemmtilegra :S:D:o:lol::lol::lol: hahaha

og auðvitað er ég með myndir af því ....

og svo er þarna ein með löggunni .. ég er þarna einhvernstaðar held ég ..... eða kanski ekki ..

og svo lá leið okkar niður að Place Massena og að gosbrunninum.. það var nú held ég ekki ætlunin að fara ofan í gosbrunninn.. en það var svo mikið stuð.. við skelltum okkur flest ofaní ..
og urðum frekar blaut topp til táar:S haha en það var bara svo gaman..
( og það er það sem ég hélt að ég mundi aldrei gera.. )

ætli eg verði ekki að setja inn eina af mér í gosbrunninum :haha::haha:

Það var svo Gaman ! þetta var bara fáranlegt !!

en svo í gær Laugardag var crazy kvöld líka.. í frakklandi er núna í gangi Rugby World Cup og það eru komin 8 liða úrslitin:Dúúú spenna !!!! og útaf því að við erum búnar að vera hérna síðan þetta byrjaði þá er ég allavega mikið búin að vera að fylgjast með þessu .. oft er fjölmennað á bar og horft á leikinn saman með bjór í annarri hendinni og já..humm.. ekkert í hinni... en já
Svoleiðis að við erum orðin mjög spennt hérna y

i gær var Frakkland að spila í 8 liða úrslitum við Nýjasjáland.. sem er mjög gott lið .. og við virkilega héldum að nýjasjáland mundi vinna cuppinn.. en hvað gerðist .. ??
Frakkland vann :D
við vorum niðrí í gamla bæ þegarleikurinn var.. það var svo pakkað ! úff.. og lætin.. það var svo gaman í þessari stemmingu!!
þetta var ruglað.. og allt útaf Rugby :S okkur fannst það pínu skrítið.. en núna þarf bara Frakkland að vinna þetta allt .. og þá erum við að tala saman ! þá verður Crazy fjör hérna í Nice!!
en jæja ég ætla að fara að elda Turkey/dinde handa mér og Signýju jammý :D
já því það er Rugby í kvöld.. þá verðum við að vera búin að elda snemma..
Argentína - Skotland.. eru að spila ..
en..

Þangað til seinna..
Kv Herdís

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 11:09:48 / verynice

Við erum enn á lífi !!

Bara svona til að láta vita af okkur.. við erum enn á lífi!! :P



við erum núna búnar að kaupa okkur webcam.. og allt á fullu að tala við fólk :D svaka gaman :D
Og við erum á fullu að ná lit ! svona smá til að sanna það er ég með mynd... ég meina á veturuna þá sést þessi blettur minn ekki ... svoleiðis að ég er að verða brúnni :D og hárið mitt ljósara:D



Smá slúður! Mér tókst að láta Signýju taka uppúr ferðatöskunni sinni :Djá við tókum svoldið til í gær og svo tókum við myndir af herberginu :D og núna er allt svaka fínt.. erum konmar með mottu á gólfið og allt hræðilega heimilislegt.. ég ætla að reyna að skella myndunum hérna inn sem fyrst.. kanski á morgun.. signý er með myndavélina með sér.. hún fór á stöndina beint eftir skóla..

verst er að kanski þurfum við að færa okkur um herbergi :( yfir í hitt húsið með "hreina" eldhúsinu :S því ef við gerum það ekki þá kanski mun moreno loka því húsi því það er ekki nóg af fólki til að fylla bæði húsin, .. og ef því húsi mundi vera lokað þá munu við signý aldrei borða framar ! því það er ómögulegt að elda í okkar eldhúsi því það er bara á engann hátt hreint.... hvernig sem þú horfir á það .... þótt hitt eldhúsið séi kanski ekki það hreinasta sem ég hef séð þá er það nú samt hátíð miðað við okkar eldhús.. sjálf mundi ég bara helst vilja eldhúsið hennar mömmu .. en ójæja..

en.. annar er bara flest gott að frétta.. svona fyrir utan að ég er bitin :( ég er svo sæt að það virkar ekkert að bera á mig eitthvað anti bite dæmi.. núna á ég 3 mismunandi gerðir en þær bíta mig samt..

ég hef tekið hrillingsmyndir af þessum bitum mínum.. en ég veit ekki hvort ég eigi að vera að skella því hér :S Þar síðustu nótt var ég bitin 6 sinnum.. og þá líka í andlitið :S við getum allveg sagt að ég var ekki sú hamingjusamasta í gær :( :$ :frown:


og það hljálpaði ekki þegar fólk á msn var að segja mér hversu frábært það væri hjá þeim...
hóst margrét hóst.. það eru greinilega engar pöddur hjá henni ... sem er jú frábært.. en manneskja með yfir 8 bit (sem eru slæm) og 3 í andlitinu vill ekki heyra neitt svoleiðis!!!
ég er ekki með tölu á því hversu mörgum sinnum ég hef verið bitin en það er að nálgast 30 stykki .. og við erum bara búin að vera hér í 3 vikur... og þau eru svo stór !


Ég er búin að panta flugið mitt heim :D:D
það er 15 des frá nice til London.. og svo verð ég á flugvellinum í london í eina nótt. :S og svo er flugið heim til Íslands kl 8 um morgun þann 16 Desember :D það eru 82 dagar þangað til að ég verð komin heim í kuldann :D haha
það er alls ekkert svo mikið :D


en jæja .. ég veit ekki allveg hvað ég á að skrifa í þetta blog..
svoleiðis að ég ætla að hætta að kvarta.. svoleiðis að ég held eg hætti bara..

Já svona meðan ég man.. Við kauptum okkur franska síma..símanr eru

+33623712191 Herdís Nice

+33622534250 Signý Nice



Það er ódýrara fyrir okkur ef þið hringið í þennann síma :D

 

Bæbæ kv Herdís (og mosqitoflugurnar!)


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 19:29:37 / verynice

Myndir

 

 

Jæja hérna koma nokkrar myndir...

 

Þessi er tekin á Sansas Bar..
frá vinstri efri röð , Phillip, Gaga, Diana, Otto
Frá vinstri neðri röð - Manuela, tipton, Herdís, Marco , Signý og Haval

og þetta eru ekki allir sem voru á staðnum þetta kvöld.. það vantar allveg jafn marga inn á myndina og þeir sem eru á myndinni :D

Þetta er mynd af mér á Sansas :D ég veit ekki hvað ykkur finnst en mér finnst ég hafa náð í einhvern lit :D

Þetta er Pascal :D hann er bara æði ! við dýrkum hann.. hann er 17 ára frá swiss :D og verður hérna eins lengi og við
Hann er svona eins og litli bróðir okkar.. hann kallar Tipton alltaf pabba :P haha
og hann er oft kallaður Öskubuska.. því hann þarf alltaf að vera kominn heim kl 11 á virkum dögum.. en má vera reyndar úti til 1 um helgar :D
en hann er bara svo frábær :D við höngum með honum rosa mikið .. hann er my swimmerpartner.. eða.. hann var sá fyrsti sem kom mér úti sjóinn eitthvað af viti :D og ég dýrka það að fara út í sjó núna :D það er Frábært :D:D

 

Á þessari mynd er frá vinstri ofar. er Shifa.. (veit ekki hvernig það er skrifað.. það er allavega sagt svona) hún er írsk og var hérna fyrstu 2 vikurnar, hún bjó í okkar húsi líka.. Svo er anja þarna líka fyrir aftan.. þær voru saman í herbergi .. en þær eru báðar farnar núna :(
en síðan erum við með Diönu . beauti;) algjört æði :D hún býr hjá Söbu í næsta herbergi við okkur.. Þýska Herbergið hún er reyndar bara í heimsókn .. og er að fara í næstu viku ..
síðan er Pascal.. hann þarf ekkert að kynna neitt frekar

Hérna höfum við Tipton, (Bandarískur).. Ég, Marco( hálfur enskur og hálfur ítalskur) og Signý

þeir eru báðir að læra frönsku en Tipton er með okkur í skóla en ekki Marco .. fínir strákar..


Vadim og Saba :: Bæði frá þýskalandi :D algjör yndi bæði :D við munum sakna þeirra svo mikið þegar þau svo fara..
hliðin á söbu er Gaga og phillip.. en gaga er eins og diana bara í heimsókn hjá Söbu ..

 

 

Þessar eru svo bara svona í lokin !
Fallegt hjá okkur í Nice Ha??.... þetta er útsýnið yfir ströndina.. við eigum reyndar eftir að fara þarna upp aftur þegar það er ekki sólsetur því þá er sjórinn svo Geðveikt flottur.. :D



Kv.. Herdís
og Signý .. hún er hérna einhvernstaðar líka :D

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 12:55:25 / verynice

ég er svo mikill letipúki !!

Þá er 1 vika búin :D og 13 eftir ....  

 

ég er búin að vera í nokkra daga að segja að ég þurfi að fara að þvo.. því flest mín föt eru orðin mjög skítug.. og alltaf segi ég, að ég ætli að þvo á morgun.. og það er ég búin að segja í allveg 3 eða 4 daga núna

Við fórum í gær á stöndina og við ætlum á stöndina í dag :D ströndin er æðisleg :D
og ég er að ná einhverjum lit hérna.. þótt allir geri grín af okkur því við erum svo Hvítar :( en við erum að verða brúnni..  þetta er allt að koma :D

 Garðar ætlar að koma í heimsókn til okkar einhverntíma meðan við erum hérna ..

og við erum búnar að ákveða að við ætlum að fara til  Milano ..með Saba og sennilega vinum hennar..  það kostar alls ekki það mikið að fara þangað ...

Saba er þýsk og býr hérna hliðiná okkur.. og núna eru 2 vinir hennar í heimsókn..
og sennilega mundi otto koma með okkur hann er frá venesuela.. hann er eins og einhvernskonar  tourguidinn okkkar.. hann veit allt.. við fórum með honum til Monaco, það var rosagott að fara til monaco með einhverjum sem vissi hvert við ættum að fara.. það var svo skemmtilegur dagur :D við eigum geðveiktar myndir frá monaco :D

 en jæja ég ætla að fara og fá mér lúr á stöndinni :D
ég blogga aftur seinna  þegar ég verð komin með myndirnar inní tölvuna frá signý .. þá get ég komið með einhver skemmtileg blogg hérna :D  og svo þurfum við að setja inn myndir af herberginu okkar.. semer allveg voða indælt.. nema kanski ekki akkurat núna.. því það er allt yfirfullt af mat og einnota hnífapörum og skítugum fötum.. og ferðataskan hennar signyjar er enn á gólfinu... :S
en já við komumst að því að það er einhver sem er að borða matinn okkar niðrí eldhúsi .. :S mjög skrítið :S
allt sem var ekki í kössum var gætt sér á.. mjólkin okkar var horfin og morgunkornið okkar búið :S
svoleiðis að núna ætlum við bara að geyma þetta inní herberginu okkar :D

 en jæja stöndin kallar !! 

kv. Herdís 


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.09.2007 20:22:13 / verynice

Djammerí

 Við erum að fara á djammerí :D vúhú

Það er partý í húsinu sem er hérna fyrir aftan okkur.. þar eru líka krakkar sem eru með okkur í skóla.. 

Hitt húsið köllum við það .. það er hreint og fínt og þú getur borðað þar án þess að vera hrædd um að þú munir kanski óvart borða einn kakkalakkann..
Við erum oftast þar :D það er paradís í nice að vera þar.. við förum þangað líka til að fá smá Normal time :D

 

þetta hús.. það er okkar hús.. það er MADHOUSE!!!
það eru börn hérna -grátandi  , hundar - geltandi og stundum inní herberginu okkar.. það er  fólk sem býr hér en enginn veit hvað það gerir á daginn.. :S og eldhúsið er viðbjóður.. það er það ógeðslegasta sem hægt er að ímunda sér.. það er ekki bara pöddur.. það er skítugt og já.. bara hreint og beint ógeðslegt !!
 

En hitt húsið er frábært.. :D og við skiljum það ekki en það er maður sem kemur þangað á hverjum degi og þrífur gólfið og þannig í eldhúsinu þar og stofuna.. það þurfa allir að ganga frá eftir sig.. vaska upp og þannig en maðurinn heldur gólfunum hreinum...
Afhverju kemur enginn að þrífa okkar eldhús ?????

Mjög svo skrítið :S:S 

Annars er bara allt gott að frétta af okkur hérna.. nema mosqito flugurnar elska mig og ég held að ég séi með ofnæmi fyir þeim :S sem er ekki gott :S
en ég er komin með krem og töflur sem að  virkar..  það reyndar lætur mig langa að sofa allveg svakalega mikið :D haha en það er bara fínt :S

 

e n jæja ég ætla að fara í Partý :D:D8):lol::lol:

kv. Herdís  


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.09.2007 09:55:20 / verynice

Nice !!

Við erum komnar.. þvíklík spenna fyrir að koma hingað og núna erum við hér..
þetta er voða skrítið :S þvi við höfum beðið eftir þessu svo lengi.. að það er skrítið að við séum hérna..
við tókum lest frá París í gær til Nice lestinn tók 5 tíma að komast hingað en það leið voða fljótt.. við horfum á útsýnið sem var auðvitað bara fallegt!!
Signý á frænku Eva Dís hérna sem tók á móti okkur á lestarstöðinni og hún keyrði okkur í húsið okkar :D
og hún var svo yndæl að bjóða okkur með sér og manninum hennar Sam og litlu 4 vikna stelpunni þeirra Anna Lilja sem er algjör rúsína í afælisgrillpartý hérna í nice.. :D sem var rosagott því við fengum að borða og tala við fólk :D

Húsið okkar er ekki það hreinasta .. en það er stórt og mikið öryggishlið fyrir utan það ! svo erum við með rosalega stórt herbergi :D eða mér finnst það vera stórt !
en það er eitthvað að pöddum.. svoleiðis að við munum bara þurfa að þrífa svoldið vel hérna !

en við ætlum að reyna að fara niður að strönd í dag og í gamla bæinn og skoða okkur svoldið um :D
svoleiðis að ég mun setja inn annað blogg sem mun segja frá Parísarferðinni okkar kanski seinna í dag eða bara kanski á morgun :D en  það var frábært í París :D

Kv. Herdís
og Signý en hún situr hérna nálægt mér :D 


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 01:29:16 / verynice

Kveðjupartý

Hæj hæj

 

Það fer allt að styttast í þetta og við signý ætlum að vera með Kveðjupartý

Það verður á Sólon laugardaginn 25. ágúst kl hálf 9 :D það væri gaman að sjá sem flesta..

það verður ódýrt áfengi í boði :D.. við nebbla erum að fara erlendis og höfum ekki mikinn penigna svoleiðis að áfegnið verður ódýrt en ekki frítt :P

ég er búin að reyna að vera að senda á myspace boð í þetta crazy partý en það eru örugglega fullt af fólki sem ég er að gleyma.. síðan er líka fullt af fólki sem er ekkert með mæspeis.. og svo er égekki með símanr nema hjá svona kanski 20 manns.. haha.. því ég týndi símanum mínum! svoleiðis að ef þig langar að mæta á staðinn þá endilega gerðu það ..

Þetta er Boð .. ÞÉR er BOÐIÐ !! :D

 

Yfir á aðrar nótur.. ég er allveg að verða búin að pakka öllu niður.. eina sem er eftir er snyrtidót og kjólar sem ég þarf að strauja... síðan á ég eftir að þvo 5 flíkur .. og svo eru nokkrir lausahlutir sem að mun vera hent ofan í þessa pjújí tösku!! þetta gengur bara voða vel..

en ég ætla að hætta núna.. ég þarf að vakna á morgun snemma...

bæjó og vona nú að sjá sem allra flesta á sólon :haha::haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Við komum aftur til Íslands :D
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1504 dögum
Klukkan
RSS tengill